Beint í efni

Gæðamál

CE merkt steinefni

Framleiðsla Björgunar-Sements á steinefnum til steinsteypu- og malbiksgerðar er CE merkt og uppfyllir skilyrði um endursölu á steinefnum samkvæmt kröfum Evrópusambandsins. Framleiðsluferlið er vottað af óháðum vottunaraðila, BSI á Íslandi sem kemur árlega og framkvæmir ítarlegar úttektir á framleiðslueftirlitskerfi Björgunar-Sements.

Björgun-Sement starfrækir gæðastjórnunarkerfi á grundvelli gæðastaðalsins ISO 9001:2015 og hefur kerfisbundið eftirlit með framleiðslunni. Björgun-Sement ábyrgist að varan sé í samræmi við yfirlýsta eiginleika og tekur sýni til prófana sem fara fram á rannsóknarstofum fyrirtækisins og hjá þriðja aðila.

Með CE merkingu staðfestir Björgun-Sement að framleiðslan hafi farið í gegnum samræmismatsferli og að varan uppfylli skilyrði sem skilgreind eru í reglugerðum og stöðlum.