Sementstegundir
Björgun-Sement flytur inn fjórar tegundir sements; Anleggsement, Standardsement FA, Industrisement og evoZero®. evoZero® sem er fyrsta sementið í heiminum sem framleitt er í verksmiðju þar sem koldíoxíð er fangað frá framleiðslu, og skilur eftir sig nánast ekkert kolefnisspor. Allar sementstegundir uppfylla kröfur byggingareglugerðar og nýlegs Evrópustaðals EN 197-1:2000. Staðlinum fylgir bæði heimild og skylda til að nota CE-merkið sem aftur á móti er háð vottun með óháðu stöðugu gæðaeftirliti Tækniseturs.

Hentar vel fyrir mannvirkjagerð
Anleggsement
CEM I 52,5 N
Anleggsement CEM I 52,5 N frá Norcem er sérstaklega framleitt til mannvirkjagerðar, til notkunar í styrkleikaflokki C40/50 eða hærri, í frostþolnar steypur, og í byggingar þar sem gerðar eru kröfur
um háan lokastyrk. Anleggsementið er með lágt alkalíinnihald og má því nota til steypugerðar með alkalívirkum fylliefnum. Sementið hefur mjög góða steypueiginleika, háan byrjunar og lokastyrk og varmamyndun í meðallagi.
Anleggsement fæst afhent
- Í lausu til dreifingar með tankbíl
- Í stórsekkjum | 1.000 eða 1.500 kg
- Í litlum sekkjum | 20 kg
Hentar vel í allflestar steypur
Standardsement FA
CEM II/B-M(V-L) 42,5 R
Standardsement FA frá Norcem hentar vel í allar almennar steypur. Það er með lágu alkalíinnihaldi og getur því hentað til steypugerðar með alkalívirkum fylliefnum.
Leitið handleiðslu fagfólks varðandi sementsmagn í steypur sem þurfa að vera veðurþolnar
Standard FA sement fæst afhent
- Í lausu til dreifingar með tankbíl
- Í stórsekkjum | 1.000 eða 1.500 kg


Sérpantað sement
Industrisement II/A-L 42,5R
Industrisement frá Norcem er sérsement með hröðu hörnunarferli og fæst það eingöngu með sérpöntun.
Industrisement fæst afhent með sérpöntun
- Í stórsekkjum | 1.200 kg
Skilur eftir sig nánast ekkert kolefnisspor
evoZero®
evoZero® er fyrsta sementið í heiminum sem framleitt er í verksmiðju þar sem koldíoxíð er fangað frá framleiðslu og skilur eftir sig nánast ekkert kolefnisspor. Með þessari framleiðsluaðferð er hægt að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda og gera sjálfbærari mannvirkjagerð að raunhæfum valkosti.
Hvert tonn af klinker sem framleitt er með kolefnisföngun jafngildir losunarsamdrætti sem nemur 307,3 kg CO₂ ígilda á hvert tonn samanborið við hefðbundna framleiðslu.

Öryggisblöð fyrir sementstegundirnar
Bæklingur um dælingu á sementi
Bæklingur um dælingu á sementi undir loftþrýstingi og öryggisatriði varðandi notkun slíkrar tækni.
Hafðu samband núna
Við svörum þér fljótt
Ef þú vilt fræðast nánar sement, verð, notkun þess og afhendingarmöguleika viljum við endilega heyra í þér.
Þú fyllir út neðangreint form og við höfum fljótt samband tilbaka.