evoZero®
Fyrsta sementið í heiminum sem skilur eftir sig nánast ekkert kolefnisspor
Heidelberg Materials hefur sett á markað evoZero®, fyrsta sementið í heiminum sem framleitt er í verksmiðju þar sem koldíoxíð er fangað frá framleiðslu, og skilur eftir sig nánast ekkert kolefnisspor. Með þessari framleiðsluaðferð er hægt að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda og gera sjálfbærari mannvirkjagerð að raunhæfum valkosti.
Björgun-Sement flytur inn sement frá Heidelberg Materials og getur nú boðið evoZero® til viðskiptavina á Íslandi.

Fyrir sjálfbærari mannvirkjagerð
Hvað er evoZero®?
evoZero® er sement sem er framleitt hjá Heidelberg Materials í Brevik í Noregi með aðstoð kolefnisföngunartækni, Carbon Capture and Storage (CCS). Þar hefur fyrirtækið byggt fyrstu kolefnisföngunarstöð fyrir sementsverksmiðju í heiminum. Árleg afkastageta hennar er um 400.000 þúsund CO2 tonn sem samsvarar um 50% af heildarlosun verksmiðjunnar.
Steypa með evoZero® fær sama styrk og endingu og hefðbundin steypa og er því hægt að nota evoZero® í hefðbundnum steypuuppskriftum án nokkurra aðlagana. Munurinn liggur fyrst og fremst í því hvernig losun frá sementinu er meðhöndlað.
Umhverfisvottorð
Kolefnisbókhald og vottorð
Heidelberg Materials styðst við umhverfisvottorð (EAC) til að halda utan um og úthluta þeim kolefnissparnaði sem hlýst af kolefnisföngun í sementsframleiðslu. Vottorð eru eingöngu gefin út fyrir klinker sem er framleiddur samkvæmt skilyrðum framleiðslunnar í Brevik.
Hvert tonn af klinker sem framleitt er með kolefnisföngun jafngildir losunarsamdrætti sem nemur 307,3 kg CO₂ ígilda á hvert tonn samanborið við hefðbundna framleiðslu.
Til að tryggja samræmi og gagnsæi í kolefnisútreikningum er notaður sérstakur kolefnisbanki þar sem kolefniseiningar eru staðfestar út frá gögnum um kolefnisföngun í framleiðslu og varanlega kolefnisbindingu.
Útreikningur á kolefnissparnaði
Þegar evoZero® er afhent viðskiptavini er kolefnissparnaður reiknaður út samkvæmt umhverfisvottorði (EAC) og samsvarandi magn tekið úr kolefnisbankanum. Viðskiptavinur fær P-EPD, það er bráðabirgða umhverfisyfirlýsingu fyrir nýjar vörur, gefna út af EPD Norge þar til gagnasöfnun yfir heilt framleiðsluár liggur fyrir.


Óháð staðfesting á inn- og úttektum
Staðfesting frá þriðja aðila
Heidelberg Materials hefur falið DNV Business Assurance Germany GmbH að annast óháða staðfestingu á inn- og úttektum í kolefnisbankann og á úthlutun kolefnissparnaðar til sementsafurða. DNV yfirfer gögn um kolefnisföngun og það magn CO₂ sem hefur verið varanlega bundið samkvæmt viðmiðum evoZero®. Að lokinni yfirferð gefur DNV út staðfestingaryfirlýsingu.
Auk þess sannprófar DNV að kolefnissparnaður samkvæmt umhverfisvottorði (EAC) fari aldrei fram úr því magni CO₂ sem raunverulega er tiltækt til úthlutunar í kolefnisbankanum.
Myndband sem sýnir framleiðsluferli og föngun í sementsverksmiðju Heidelberg Materials í Brevik.
Hafðu samband núna
Við svörum þér fljótt
Ef þú vilt fræðast nánar evoZero®, verð, notkun þess og afhendingarmöguleika viljum við endilega heyra í þér.
Þú fyllir út neðangreint form og við höfum fljótt samband tilbaka.