
Vinnslusamstæður í námum
Lambafell og Eden
Björgun-Sement starfrækir námuvinnslu á tveimur stöðum í Þrengslunum; Lambafelli og Lambafelli/Eden. Þar eru framleidd steinefni til ýmissa mannvirkjagerðar, til vegagerðar, í malbik og steinsteypu.
Vinnslusamstæðurnar samanstanda ýmist af hörpum og brjótum og er efnið harpað og/eða brotið í stærðarflokka eftir því hvaða vörutegundir er verið að framleiða.